4 vikna námskeið með Ingu Rún – Nýtt námskeið 26. maí | Jógasetrið

4 vikna námskeið með Ingu Rún – Nýtt námskeið 26. maí

Þriðjudagar 26. – 16. júní kl 19:00 – 20:30

Skráning á næsta nidra námskeið í Jógasetrinu er hafin  

Námskeiðið er nærandi jóga nidra námskeið með áherslu á sjálfsmildi, núvitund, streitulosun og djúpa slökun. Hagnýt bjargráð út frá ACT nálgun (acceptance and commitment therapy) og núvitund (e. mindfulness) fléttast inn í tímana.

Innifalið í námskeiðinu er kort í alla opna tíma í Jógasetrinu meðan á námskeiði stendur.

Námskeiðið hentar vel byrjendum sem og lengra komnum. Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg og er námskeiðið ekki trúarlegs eðlis.

Námskeiðið getur gagnast þeim sem:  

  • Finna fyrir streitu, álagi, svefnvanda eða þreytu og vilja endurnýja orkuna, bæta svefn, auka streituþol og seiglu í daglegu lífi.
  • Vilja róa taugakerfið á áhrifaríkan hátt.

Þetta fá þátttakendur:  

  • Fjögur 90 mín námskeiðskvöld með Ingu Rún.
  • Rými til að rækta innra jafnvægi og endurnýja orkuna.
  • Fræðslu um einföld og hagnýt verkfæri til að róa taugakerfið, “varpa akkeri” og iðka núvitund.
  • Jóga nidra hljóðupptökur til eignar sem hægt er að nota að vild, einnig eftir að námskeiði lýkur, tilbúnar til niðurhals um leið og gengið er frá greiðslu.
  • Nærandi tebolla í upphafi hvers tíma.
  • Opið kort í Jógasetrinu meðan á námskeiði stendur.

Ég hlakka mikið til að eiga nærandi stundir í Jógasetrinu á næstunni.

 

4 vikna námskeið, á þriðjudagskvöldum kl. 19.00-20.30.

Hefst 26. maí (tímarnir eru því 26. maí, 2. júní, 9. júní og 16. júní)

Verð: 25.000 kr.

Korthafar í Jógasetrinu fá 20% afslátt og greiða 20.000 kr

Staðsetning: Jógasetrið, Skipholti 50c

 

 

Hægt er að lesa meira um Ingu Rún,  hennar störf og reynslu á heimasíðu hennar: www.inga.run

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.