
Ástæður fyrir þakklæti yfir því að þú ert þú!
Þriðjudaginn 5. ágúst 2025 kl 19:00 – 21:30
Jóga og einföld talnaspeki og þínar orkustöðvar
Kundalini er einskonar kraftur eða rafmagn sem býr innra með öllum mannverum. Við erum með 8 orkustöðvar. Þessi kraftur býr í neðstu tveimur orkustöðvunum. Við notum þennan kraft á hverjum degi til að lifa. Því meira sem við örvum þessa orku því meiri kraft fáum við og því meiri sem orkan er því meðvitaðri erum við. Ef við erum dugleg að örva þessa orku þá getur hún farið upp alla hryggjasúluna og við komumst í tengingu við alheimsvitundina. Líkaminn okkar er hannaður eins og hljóðfæri og við getum sjálf stillt þetta hljóðfæri á þá tíðni sem okkur langa. Á tíðni kærleika sem er í samhljómi við sálina okkar. Sálin er partur af öllum heiminum. Markmið sálarinnar er að tengjast alheimskraftinum og þannig vera þáttakandi í sköpunarverkinu.
Estrid hefur verið að læra um og vinna með talnaspeki í yfir áratug. Þann 5. ágúst ætlar hún að kenna sólríkum sólarjógaiðkendum að reikna út sinn eigin afmælisdag og komast að því hvaða orkustöð er í góðu formi og hvaða orkustöð þarf athygli. Allar æfingar í jóga hafa jákvæð áhirf á orkustöðvarnar. Talnaspekin getur hjálpað okkur að sjá hvaða orkustöð þarf hvaða æfingu.
Jóga, slökun, Gong og hugleiðsla.
Ekki missa af þessu tækifæri……
Innifalið fyrir iðkendur Jógasetursins, bóka í tíma hér:
https://www.jogasetrid.is/
Verð 4.000 kr.
Skráning og kaupa aðgang hér, ef þú ert ekki iðkandi í Jógasetrinu:
https://www.abler.io/shop/jogasetrid?country=IS