BLEIKA HJARTAÐ á fullu tungli 7. október

 

Þriðjudagur 7. október kl. 19.00-20.30

Við komum saman á Fullu Tungli til að fagna lífinu, dansa, syngja, hugleiða og þiggja dásamlegar möntrur með Dísu og Helmu Ýr. Svo verður Tónheilun með Thelmu Björk, Dísu,  Auði, Maríu og Estrid. Við fögnum hvort öðru og fögnum Bleiku Slaufunni hennar Thelmu.

Thelma Björk er sannkölluð listagyðja í hönnun, jóga og í lífinu sjálfu. Thelma kennir hjá okkur annan hvorn fimmtudag kl 10:00 Mjúkt jóga og Nidra.

Endilega mæta í einhverju bleiku. Bleika slaufan verður til sölu á staðnum og fleiri vörur til styrktar Krabbameinsfélaginu.
 
Innifalið í korti fyrir iðkendur ( bóka tíma eins og vanalega )
Aðrir greiða 4500 kr.
 

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“