
Fæðingarspjall og söguhringur á meðgöngu með Elvu
Sunnudaginn 15. mars kl. 14.00- 15.30 í Jógasetrinu
Dásamlegt tækifæri til að spjalla um meðgönguna, fæðinguna og sængurlegu með öðrum konum.
Yndislega ljósmóðirin Elva Rut frá Björkinni mun leiða spjallið, svara spurningum og koma með hugleiðingar um efnið.
Allar verðandi og nýbakaðar mæður velkomnar!
Sunnudaginn 15. mars kl. 14.00- 15.30
Frítt fyrir iðkendur í Jógasetrinu sem bóka tíma eins og venjulega
Aðrar greiða: 4.500 kr
Elva Rut
Ljósmóðir og jógakennari
Elva Rut er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Hún hefur starfað sem ljósmóðir í Hreiðrinu og á fæðingarvakt LSH á árunum 2006-2018. Í maí 2017 hóf hún störf í Björkinni sem er ljósmæðrastýrð fæðingarstofa og sinnir þar konum í mæðravernd, fæðingu og heimaþjónustu.
Elva fékk áhuga á jóga þegar hún var að sinna konum í fæðingu sem höfðu stundað jóga á meðgöngu og fannst áhugavert hvað jóga hjálpaði konum í fæðingunni. Elva útskrifaðist sem kundalini jógakennari árið 2015, meðgöngu jógakennari árið 2016 og jóga nidra kennari árið 2018.
Elvu er mjög umhugað um að styðja við og fræða konur á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu dagana eftir fæðingu, og þá sér í lagi aðstyðja við val og óskir kvenna.Elvu er hugleikið að hvetja barnshafandi konur til að gefa sér tíma til að stunda jóga á meðgöngu, því það er falleg gjöf sem hin barnshafandi kona gefur sér, barninu sínu og fjölskyldu sinni.