
Heilandi jóga (Therapeutic Yoga) með Rósu
Fjórar vikur á þriðjudögum frá 21. apríl – 12. maí kl. 19.00-20.30
Á námskeiðinu leiðir Rósa í heilandi jógaferðalag og fræðslu
Lögð er áhersla á:
• Hægar og meðvitaðar jógaæfingar (Asana)
• Öndun (Pranayama)
• Hugleiðslu
• Jóga Nidra djúpslökun
Þetta færð þú:
- Fjögur 75 mín námskeiðskvöld með Rósu í Jógasetrinu.
- Rými til að rækta innra jafnvægi og endurnýja orkuna.
- Fræðslu um einföld og hagnýt verkfæri til að róa taugakerfið.
- Opið kort í Jógasetrinu meðan á námskeiði stendur.
Heilandi jóga er gott bjargráð við streitu og álagi og jafnvel afleiðingum áfalla. Nálgunin er mild og markviss sem styður við taugakerfið, eykur öryggiskennd og tengsl við líkamann, hjálpar líkama og huga að finna jafnvægi og innri ró og styður við náttúrulega hæfni líkamans til að heila sig.
Heilandi jóga hentar öllum sem vilja næra sig og hlúa mjúklega að líkama og huga og þá sem:
Glíma við langvarandi streitu eða kulnun
Upplifa kvíða eða spennu í líkamanum
Vilja styrkja tengsl við sjálfan sig á mildan hátt
Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg.
4 vikna námskeið, á þriðjudagskvöldum kl. 19.00-20.30.
21. apríl, 28. apríl, 5. maí og 12. maí
Verð: 25.000 kr.
Korthafar í Jógasetrinu fá 20% afslátt og greiða 20.000 kr
Kristín Rósa eða Rósa eins og hún er alltaf kölluð er jógakennari og jóga þerapisti. Hún er með kennararéttindi í jóga-Nidra og Hatha jóga frá Amrit Yoga Institute og í Vinyasa-flæði frá Radiantly Alive á Bali. Hún er einnig Kundalini jógakennari og hefur sótt framhaldsnámskeið í kundalini jóga, jóga-Nidra, og jógaþerapíu. Hún lærði Yoga therapiu hjá Kamini Desai og hefur nýlokið (mars 2026) Therapeutic jóganámi/heilandi jóga í Yoga Shala. Rósa er menntaður hjúkrunarfræðingur með meistarapróf í Lýðheilsuvísindum og í lokaverkefni sínu í lýðheilsuvísindum skrifaði hún sérstaklega um streitu og áhrif hennar á heilsu og líðan, og streitustjórnun. Hún hefur sótt námskeið í “stress -management og resilience training” frá Benson Henry Institute og lært markþjálfun hjá Profectus. Rósa hefur víðtæka reynsu af jógakennslu í Jógasetrinu og víðar.