
Hugleiðsluferðalag – Hreinsun undirvitundarinnar
Þriðjudagurinn 23. september kl. 19:30-21:30
Komdu með okkur í hugleiðsluferðalag þar sem við setjum áherslu á hreinsun undirvitundarinnar og innri endurnýjun.
Í gegnum leidda hugleiðslu, möntrur og kraftinn í gonginu opnast rými þar sem við losum um spennu, hreinsum hugann og nærumst í kyrrð og slökun. Þetta er einstakt tækifæri til að sleppa því sem þjónar þér ekki lengur og tengjast þínum innri styrk og ró.
Hjónin Guðrún og Benedikt munu leiða viðburðinn. Þau eru bæði jógakennarar og hafa leitt saman gong slakanir í Jógasetrinu við góðar undirtektir. Þau eru með fjölbreyttan bakgrunn á sviði jóga og tónlistar og flétta honum saman eina fallega heild.
Allir velkomnir, engin reynsla nauðsynleg.
Ath. Mælt er með því að borða létta kvöldmáltíð helst 1-2 klukkutímum fyrir viðburðinn.
Verð:
Innifalið í korti fyrir iðkendur, aðrir greiða 4.500 kr