
Kennararnir í Meðgöngujóga í Jógasetrinu
Kæra barnshafandi sköpunargyðja
Við viljum kynna Meðgöngujóga kennarana okkar sem eru allar dásamlegar.
Endilega nýtið ykkur fjölbreytta tíma hjá okkur.
Bóka tíma: https://www.jogasetrid.is/
Auður Bjarnadóttir, hefur kennt jóga síðan 2000. Árið 1999 tók hún sitt fyrsta kennarapróf, hatha/ashtanga í “Mount Madonna” í Kaliforníu. Meðgöngujóganámið hófst í Seattle árið 2000, á Kripalu Center árið 2002 og hjá hinni víðfrægu Gurumukh ‘Khalsa Way’ árið 2005. Auður útskrifaðist sem Kundalini jógakennari árið 2005 í New Mexico. Hún er einnig með kennararéttindi í Yoga Nidra og Yoga Therapíu frá Amrit Institute í Florida. Árið 2012 tók hún Diploma sem Dáleiðslutæknir haustið 2012 frá The International School of Clinical Hypnosis. Auður hefur sérhæft sig í meðgöngujóga og fæðingarfræðum og tók Doulu námi hjá Hönd í Hönd 2011 og HypnoBirth námskeið. Árið 2000-2001 sá Auður um Krakkajóga í Stundinni okkar og 2012 gaf hún út Krakkajóga DVD mynd ásamt “Erumenn”. Auður hefur kennt víða og haldið utan um ýmis námskeið í Jógasetrinu, ma. Kennarnám í Kundalini Jóga og fleiri fjölbreytt námskeið. Auður elskar að kenna en líka að læra og lítur á sig sem eilífan nemanda í jóga, og að lifa lífinu lifandi. Auður kennir Kundalini jóga, Meðgöngujóga, Mömmujóga, Hatha jóga og Jóga Nidra, leiðir Kennaranám í Kundalini og fleira. Auður hefur einnig leitt jógaferðir á fjöllum og síðustu ár hefur hún einnig kennt íslenskum og erlendum hópum á Krít og Corfu á Grikklandi.
Elva Rut er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Hún hefur starfað sem ljósmóðir í Hreiðrinu og á fæðingarvakt LSH á árunum 2006-2018. Í maí 2017 hóf hún störf í Björkinni sem er ljósmæðrastýrð fæðingarstofa og sinnir þar konum í mæðravernd, fæðingu og heimaþjónustu.
Elva fékk áhuga á jóga þegar hún var að sinna konum í fæðingu sem höfðu stundað jóga á meðgöngu og fannst áhugavert hvað jóga hjálpaði konum í fæðingunni. Elva útskrifaðist sem kundalini jógakennari árið 2015, meðgöngu jógakennari árið 2016 og jóga nidra kennari árið 2018.
Elvu er mjög umhugað um að styðja við og fræða konur á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu dagana eftir fæðingu, og þá sér í lagi aðstyðja við val og óskir kvenna.Elvu er hugleikið að hvetja barnshafandi konur til að gefa sér tíma til að stunda jóga á meðgöngu, því það er falleg gjöf sem hin barnshafandi kona gefur sér, barninu sínu og fjölskyldu sinni.
Sunna María lauk námi í hjúkrunarfræði árið 2017 og ljósmóðurfræði árið 2020. Sunna hefur starfað á vökudeild, fæðingarvaktinni og í mæðravernd . Frá árinu 2021 starfaði hún hjá Björkinni en er núna starfandi hjá Fæðingavakt LSH og í sálgæslunámi. Sunna er skapandi orka í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, stóru og smáu, femínisti fram í fingurgóma með sterka réttlætiskennd. Uppskriftin að hamingjunni er samvera með börnunum, iðkun a jógamottunni, núvitund í náttúrunni með dassi af dansi, góðu kaffi og kæruleysi.
Júlía er jógakennari og Doulunemi. Hún útskrifaðist sem Kundalini jógakennari árið 2016 og svo Jóga Nidra kennari árið 2018.
Júlía hefur stundað jóga frá 16 ára aldri og hefur það umbeytt lífi hennar á þann hátt að hana langar til þess að opnað þennan heim fyrir fleirum. Júlía hefur einnig lokið Thai nuddnámskeiði sem hún nýtir sér meðal annrs fyrir barnshafandi konur. Því henni finnst fátt jafn gefandi og að vera stuðningur fyrir barnshafandi konur.
Júlía er í Vikasa Hatha jógakennara námi auk þess sem hún sinnir því að vera tveggja barna móðir sem starfar á leikskóla þar sem hún elskar að fá að kenna krakkajóga. Júlía hefur brennandi áhuga á öllu því sem viðkemur meðgöngu, fæðingu og uppeldi.
Guðrún Theodóra er menntaður meðgöngu- og kundalini jógakennari. Jógaástundunin hófst í meðgöngujóga hjá Auði Bjarna árið 2008. Eftir það hófst iðkun í kundalini jóga sem lauk með útskrift sem kundalini jógakennari árið 2011 (Jógasetrið, KRI), meðgöngujógakennari árið 2014 (The Mother’s Journey, Carolyn Cowan og Satya Kaur) og jóga nidra leiðbeinandi árið 2022 (Amrit Yoga Institute).
Hún hefur sótt ótal námskeið til viðbótar tengd jóga og hugleiðslu eins og – Beyond Addiction. Námskeið þróað af Sat Dharam Kaur ND og Jivan Joti Kaur PhD sem samþættir kenningar Dr. Gabor Maté og fleiri sérfræðinga á fíknisviði.
– Breath of Life (Ayurprana, Vasant Lad)
– 3 framhaldsnámskeið í Kundalini jóga (Mind & meditation, Authentic relationships og Lifecycles & Lifestyles).
– Innhverf Íhugun hjá Íslenska Íhugunarfélaginu.
– Gong spilun hjá Arnbjörgu Konráðs.
– SatNam Rasayan heilunartækni með Vivecku Pasquier.
– Krakkajóga hjá Gurudass Kaur.
Guðrún stundar nú framhaldsnám í ayurvedískri ráðgjöf og lýkur því í byrjun árs 2025.
Hún starfar einnig sem aðstoðarmaður í fíknimeðferð hjá SÁÁ þar sem hún fær einnig að deila hugleiðslu, jóga og Nidra slökun til skjólstæðinga.
Í kennslu leggur hún mikla áherslu á tengingu við andardráttinn til að styrkja líkamsvitundina og stýra huganum betur.
Þannig komumst við dýpra inn á við og vöxum rólega í bestu útgáfuna af okkur sjálfum.
Hildur er menntaður lögfræðingur og starfar sem lögmaður. Hildur hefur stundað jóga frá árinu 2010, þegar hún kom í fyrsta jógatímann sinn, sem var meðgöngujóga hjá Auði í Jógasetrinu, og hefur síðan þá markvisst fléttað jóga inn í líf og starf.
Í meðgöngujóganu kynntist Hildur töfrum jóga af eigin raun, og hvernig þeir nýtast sérstaklega vel á meðgöngu og í fæðingu. Hún útskrifaðist sem jógakennari frá Jógasetrinu árið 2023, og var þá barnshafandi af þriðja barninu sínu.
Hildur brennur fyrir að styðja og hvetja barnshafandi konur og miðla þeirri þeirri þekkingu og reynslu sem hún hefur sjálf öðlast af því að nota jóga á meðgöngu, í fæðingu, og fyrstu vikurnar heima eftir fæðingu – sem nýtist síðan svo vel út í allt lífið.
Ástrós Erla starfar sem jógakennari, heilari og félagsráðgjafi. Í jógakennslunni leggur hún mikla áherslu á að einstaklingar fái hin ýmis tól til að tengjast sjálfu sér betur í gegnum vinnu með huga, líkama og sál. Hún blandar saman ýmsum fræðum til að einstaklingar fái heildrænar leiðir að bættri líkamlegri og andlegri heilsu. Í tímunum blandar hún saman líkamlegum jógaæfingum, hugleiðslu, öndunaræfingum, æfingum fyrir orkulíkama, núvitund og sjálfstyrkingu.
Halldóra Hanna eða Dóra eins og hún er kölluð, er starfandi jógakennari, hjúkrunarfræðingur á Líknardeildinni og ACC markþjálfi. Halldóra lauk jógakennaranámi í Jógasetrinu vorið 2023 og hóf samhliða náminu að kenna meðgöngujóga hjá Jógasetrinu, þá ófrísk af sínu fjórða barni. Halldóra hefur brennnandi áhuga á öllu sem viðkemur meðgöngu, uppeldi og andlegum málefnum. Hún hefur haldið fjölbreytt námskeið og fjölda fyrirlestra tengt heildrænni heilsu, hugarfari og andlegum málefnum.