Krakkalakkajóga á Menningarnótt | Jógasetrið

Krakkalakkajóga á Menningarnótt

Í Borgarbókasafninu Grófinni 2. hæð, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík

Ókeypis inn fyrir öll!

Laugardaginn 22. ágúst 2026 klukkan 13:30 – 14:00 og 14:30 – 15:00

Kennari: María Shanko, slöngutemjari.  

Réttu úr þér eins vel og þú getur, líkt og þú værir gíraffi. Farðu á fjórar fætur eins og ljón, konungur frumskógarins. Stattu upp, breiddu út risastóran górillufaðminn og ímyndaðu þér að þú sért að faðma stærsta tréð í skóginum.   

Nánari upplýsingar: Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.