Kvennavika með Auði og Carmen á Ítalíu – Free to be me!

10. – 16. júní 2025  

Kvennavika í dásamlegri náttúruparadís.

” FREE TO BE ME ”   KVENNAVIKA í nátturuparadís!

Jóga, möntrur, jóga nidra, dans, útivist og kvennastyrking!

Gönguferðir í náttúrunni, heimsókn á Monte Sacro, ítalskur morgunverður á kaffihúsi og rölt um litríka markaði.

 

Meðmæli:
“Að taka þátt í Kvennaviku með Auði og Carmen á Ítalíu er eins og að vefja sig í dúnmjúkan og heilandi bómul. Auður leiðir jóga og miðlar af sinn einstöku og dýrmætu reynslu og Carmen nærir okkur með sínum fallegu möntrum, dásamlegum mat og yndislegri gestrisni. Þessi samvera er einstök og ekki spillir fyrir að vera í ótrúlega fallegu umhveri í sveitum Ítalíu.

Þessi fallega blanda Auðar og Carmen ásamt því að vera í einstöku ítölsku umhverfi er eitthvað sem ég mæli með fyrir alla. Ég hef tekið þátt síðustu tvö ár og hlakka til að vera með í þriðja skiptið núna í júní.”
Dísa Hreiðars

“Að gefa sér þá gjöf að fara í jógaferð upp til fjalla í Ítalíu var góð og gefandi ákvörðun. Það voru þvílík forréttindi að byrja hvern dag með djúpu og töfrandi jóga hjá Auði úti í náttúrunni með útsýni yfir alla fegurðina sem staðurinn bauð upp á. Boðið var upp á jóga nidra seinni partinn og einnig var afar gefandi hvernig möntrusöng var fléttað inn í dagskránna þar sem bæði Dísa og Carmen spiluðu og sungu með okkur. Ítalski maturinn sem Carmen eldaði var einstakur og félagsskapur kvenna sem saman var komin þar sem hver ein kona kom á eigin forsendum til að gefa sjálfri sér rými til að vera og fara inn á við í fallegri kyrrð og góðum félagsskap annarra kvenna. Þetta var einstaklega nærandi ferð sem gaf mikið og áhrifin eftir ferðina voru sterk eftir heimkomu. Ég mæli innilega með að konur sem hafa þörf fyrir að gefa sjálfri sér rými, borða góðan mat og fá ljúfan félagsskap gefi sér það að fara með í næstu ferð. “
Katrín Eyjólfs

“Eitt af því besta sem ég hef leyft mér að gera fyrir sjálfa mig var að fara með elsku bestu Auði á þennan dásamlega stað. Yndislegur félagsskapur, fullkomin blanda af ró, yoga, náttúru og stútfullt af kærleik. Dreymir um að fara aftur!”
Andrea Eyland

“Ég hef farið þessa ferð í þau tvö skipti sem hún hefur verið og ætla að gefa mér þá gjöf að fara aftur núna í júní 2025.
Frelsi til að vera ég og endurheimt líkama og sálar í dásamlegri kvennorku.
Vinkvennatengsl sem eru komin til að vera eftir viku samveru í gleði, kyrrð, söng og jóga. Dásamlegt umhverfi og maturinn svo nærandi.
Samvera þar sem er rými til einveru ef maður kýs, hentar jafnt byrjendum í jóga sem vönum.
Hver ferð gefur mér dýpri tengingu við hjartað og einstaka upplifun. Ég kem heim endurnærð og tengd við hjartað og móður jörð, tilbúin í verkefni lífsins.
Auður og Carmen eru dásamlegt teymi sem ná að gera ferðina töfrandi í hvert sinn svo ég kem heim með nýja töfra og nýja mig.
Auður er fjársjóður af fræðslu og kærleika, heldur vel utan um hópinn og nær að skapa mjúka frelsandi og heilandi orku innan hópsins.
Carmen listakokkur, syngur eins og engill og hefur einstaklega hlýja nærveru og alltaf tilbúin til þess að leiðbeina ef þörf er.
Centro be you setrið er í dásamlega fallegu umhverfi þar sem náttúran nærir hverja frumu.
Þessi ferð er hverrar krónu virði og að mínu mati er þátttaka allra í eldhúsinu og öðru á staðnum, eitthvað sem toppar jógaiðkunina þar sem þátttaka er grunnur jógafræðanna. “
Kristín Snorradóttir
Teymisstjóri Bjarmahlíð þolendamiðstöð, Akureyri

 

Centro BeYou er í miðjum, blíðum hæðum Monferrato World Heritage vínekra í Piemonte á Ítalíu. (ca 2 tíma keyrsla frá Milanó eða Genúa). Hægt er að taka rútu frá flugvellinum í bæinn Alessandria og láta sækja sig á setirð.
Við opnum fyrir lífinu, að lifa í gnægð, finnum aðgang að gleðinni og sköpunarkraftinum í dásamlegri náttúru og kvennasamfélagi.

Auður Bjarnadóttir  hefur kennt jóga síðan árið 2000 og rekur Jógasetrið í Reykjavík. Hún hefur kennt jóga reglulega á Krít og á Corfu í Grikklandi og elskar að kenna jóga sem mest úti. Hún kennir jóga í flæði og sköpun, aðlagað að hverjum og einum. Auður er einnig jógaþerapisti og einbeitir sér í öllu starfi sínu að töfrum þess að koma heim inn í líkamann, heim til okkar sjálfra.

Möntrustund, satsang og í boði námskeið með möguleika að læra á ukulele með Carmen.

Carmen Hubig er Bhakti Yoga kennari og möntrusöngkona. Hún mun leiða möntrustundir og stundum spila og syngja “live” í jógatimunum. Hún sem rekur litla fallega hótelið

Hægt er að finna úrval af möntrum með Carmen bæði á soundcloud og Youtube til að hlusta á og þróa tilfinningu fyrir því sem bíður þín. https://www.youtube.com/watch?v=md7DhdvbybA

VERÐ: Aðeins 145.000 kr fyrir námskeiðið og einnig innifalið 6 daga gisting í dásamlegum íbúðum  fyrir 2-4 og fæði. 

GREIÐSLUR: 65.000 kr greiðast við skráningu til Jógasetursins og svo 550 Evrur við komuna úti!

Skráning á: jogasetrid@jogasetrid.is
Vinsamlegast greiðið 65.000 kr inn á
0137-26-36505 Kt. 650106-2880

COST  including retreat, food and accommodation for 6 days in a appartment for 2 people: Only 1.000 €.  Per person

OTHER ACTIVITIES

Simply enjoy la dolce vita in Italy. Could start with breakfast in Casale Monferrato in our favorite café because, is there a place where coffee tastes better than in Italy? A wide range of fresh fruit and vegetables as well as one or the other bargain are also waiting for you at the typical markets in the area you can visit after your breakfast in the town.

HOLY MOUNTAIN
There is also the opportunity to visit one of the holy mountains in Italy Sacro monte di crea sacrimonti.org

MASSAGE
Carmen is also offering Lomi Lomi the Hawaiian healing massage or lessons with the baritone ukulele to accompany you in mantra singing.

KARMA YOGA
About 1 hour of Karma Yoga is expected per day per participant. Mainly in the kitchen when preparing meals together or in the garden watering the Flowers if necessary. It also enables participants to learn more about Italian cuisine. And is a beautiful experience of community and connection following one of the Yogic principles.

FOOD
The food is Italian, typical of the country and vegetarian.

Water and tea are always available. fresh seasonal fruits, for a snack between meals are evan available at any time. For dinner we serve 1/2 bottle of white wine / house wine / person.
Breakfast/lunch is scheduled after the morning yoga practice around 10:30 o’clock,

The dinner takes place depending on the daily schedule around 19:00 o’clock after the afternoon Yoga class in CentroBeYou. If possible, we will also have dinner in a local restaurant in the vicinity.

ACCOMMODATION
There are 5 apartments available, ranging from 30-75 sqm each with 2-4 beds.

There are therefore only half apartments available. The residents of an apartment share a bathroom.

Bed linen and towels are provided, which will be changed if necessary. Pool towels, towels for the loungers are to be brought.

Single use of one of the smaller apartments will be charged at an additional cost of 200€ subject to availability.

COST for retreat including food and accommodation: 1.000 EURO

WHERE

Aprox. 2 hours drive from Milano or Genua.  You can rent a car or there is a possibility to come from the airport by train to Alessandria the town where we can come to pick you up. 

 

 

More Accommodation Information at  carmen.hubig@googlemail.com

Please register for course at: jogasetrid@jogasetrid.is – Payment informations will be sent to you after registration.

Participation is confirmed upon receipt of the deposit of 450 €.  ( 65.000 kr  to Jogasetrið ) 
The Balance is to be paid in cash upon arrival in Italy 550 €

 

Discover Carmen Hubig on #SoundCloud
https://on.soundcloud.com/9Ls3Z

Get further informations :
Centro BeYou
+39 331 402 0865

See more:  www:yogabeyou.de or on Facebook at https:www.facebook.com/retreatcenterbeyou/

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.