
Kvenorkuflæði 1. febrúar 2026
Sunnudaginn 1. febrúar kl 16:00 – 18:00
Langar þig að vekja upp lífsorkuna/kvenorkuna og flæða frjáls í djúpri innri tengingu. Þá er þessi viðburður fyrir þig.
Kvenorkuflæði er skemmtileg blanda af orkustöðvavinnu, mjúku jógaflæði og langri og djúpri slökun. Í lok tímans verður tónheilun með gongi og hörpu (Therapeutic harp).
Kvenorkuflæði hentar öllum konum á öllum aldri og ekki þarf að hafa neinn grunn í jóga til að njóta. Þú mætir með opinn hug og hjarta.
Laufey Steindórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og jógakennari hefur haldið viðburði og námskeið frá árinu 2017. Hún á að baki fjölbreytt nám í jóga m.a. jóga nidra og jógaþerapíu hjá Kamini Desai Jógakennaranámi í Jógasetrinu ásamt öðru námi hérlendis og í Svíþjóð.
Almennt verð 5.000 kr
Iðkendur í Jógasetrinu fá 50% afslátt og greiða 2.500 kr