Lífið á Meðgöngu | Jógasetrið

Lífið á Meðgöngu

Samverustund með Sæunni Kjartans

Fyrir barnshafandi konur í Jógasetrinu og maka þeirra

Laugardag 30. maí kl 16.00 – 17.30  

Almennt verð fyrir parið: 10.000 kr
5000 kr fyrir pör sem eru iðkendur í Jógasetrinu.  

Kæra barnshafandi sköpunargyðja

Við erum svo heppnar að fá Sæunni Kjartans til okkar með Viðburð / Samverustund  fyrir þig og maka þinn.

Sæunn er höfundur bókanna ÁRIN SEM ENGINN MAN og FYRSTU 1000 DAGARNIR

Í þessari samverustund með Sæunni Kjartansdóttur ætlum við að spá í líðan og hugsanir sem fylgja því að eiga von á barni.

Meðal annars verður fjallað um:

  • Ólík hlutskipti pabba og mömmu
  • Áhrif meðgöngu á samband þeirra
  • Áhrif þeirra á barnið í móðurkviði
  • Órökréttar hugsanir og tilfinningar
  • Reynslu foreldranna úr barnæsku

Lögð verður áhersla á að gefa rými fyrir spurningar og vangaveltur verðandi foreldra um hvaðeina sem fylgir því að koma barni í heiminn.

 

Sæunn Kjartansdóttir hjúkrunarfræðingur og sálgreinir hefur sérhæft sig í tengslum foreldra og ungbarna. Hún var einn af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna, sem nú tilheyrir Geðheilsumiðstöð barna hjá Heilsugæslunni, og er höfundur bókanna Árin sem enginn man og Fyrstu 1000 dagarnir.

Skráning er nauðsynleg. Eff fyllist þá reynum við að bæta við öðrum viðburði.   

 

Almennt verð fyrir parið: 10.000 kr
5000 kr fyrir pör sem eru iðkendur í Jógasetrinu.

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.