
Orkustöðvarnar – Vinnustofa með Estrid NÁMSKEIÐI FRESTAÐ ný dagsetning auglýst síðar
Tveir þriðjudagar 7. og 14. apríl 2026 kl 19:00 – 21:00
Litir, litir, litir – vitamin fyrir sál og líkama
Orkustöðvarnar eru eins og litríkar nótur innra með okkur og þær þrá að fá athygli. Dustum af þeim rykið, setjum þær í kærleiksbað og njótum þess að leyfa þeim að skína.
Líkamanum má líkja við margt en í yoga er hann oft kallaður musteri sálarinnar. Þetta musteri er það dýrmætasta sem okkur er gefið. Inni í þessu musteri eru herbergi, salir, krókar og kimar. Orkustöðvarnar eru einskonar verkefnastjórar fyrir ákveðin svæði í musterinu og þegar allir starfsmenn eru vel nærðir og í stuði þá er sko bjart yfir musterinu og kraftaverkin verða að veruleika. Stundum ruglast einn verkstjórinn og man ekki hvað hann átti að gera en það getur verið mjög algegnt. Það fer eftir því hvar orkan í líkamanum er lítil eða stundum líka ofhlaðin. Hvaða aðferð á best við til að leiðrétta? Ein leið er með heilunar krafti Kundalini yoga.
Kundalini er einskonar kraftur eða rafmagn – lífsorka sem býr innra með öllum mannverum. Við erum með 8 orkustöðvar. Þessi kraftur býr í neðstu tveimur orkustöðvunum. Við notum þennan kraft á hverjum degi til að lifa. Því meira sem við örvum þessa orku því meiri kraft fáum við og því meiri sem orkan er því meðvitaðri erum við. Ef við erum dugleg að örva þessa orku þá getur hún farið upp alla hryggjasúluna og við komumst í tengingu við alheimsvitundina. Líkaminn okkar er hannaður eins og hljóðfæri og við getum sjálf stillt þetta hljóðfæri á þá tíðni sem okkur langar. Til dæmis á tíðni kærleikann sem er í samhljómi við sálina okkar. Sálin er partur af öllum heiminum. Markmið sálarinnar er að tengjast alheimskraftinum og þannig vera þátttakandi í sköpunarverkinu.
Á þessari vinnustofu munum við með litríku innsæi vinna djúpt inná við og taka til og stilla orkustöðvarnar. Allar æfingar í jóga hafa jákvæð áhirf á orkustöðvarnar.
Til gamans langar til að hvetja þig til að mæta klædd / klæddur uppáhalds litnum þínum og við förum í skemmtilegan litaleik.
Jóga slökun Gong og hugleiðsla.
Ekki missa af þessu tækifæri…
Verð:
Almennt verð 9.500 kr
Iðkendur greiða 6.500 kr