SAMVINNA OKKAR ALLRA Í JÓGASETRINU

Kæru iðkendur í Jógasetrinu
Vinsamlegast athugið eftirfarandi: 

Jógadýnur
Við biðjum þig vinsamlegast að vera með þitt eigið jógahandklæði sem þú leggur yfir dýnuna eða koma með þína eigin jógadýnu.
Ef ekki þá vinsamlegast biðjum við ykkur að þrífa yfir dýnuna í lok hvers tíma. Spray og klútar eru í glugganum.

Síminn
Vinsamlegast verum ekki í símanum í salnum heldur skiljum hann eftir frammi, eða pössum að það sé slökkt á honum og setjum á flugstillinguna.

Ilmvatn
Það eru margir sem eru viðkvæmir og hafa óþol fyrir ilmvatni.
Vinsamlegast nota ekki ilmvatn þegar þú ert að koma í tíma. Mælum með að nota í staðinn ilmkjarnaolíu. Dásamlegir fjölbreyttir ilmar og náttúrulegt. Munum líka að allt sem fer á húðina okkar fer inn í blóðið!

Að bóka sig fyrirfram í tíma
Vinsamlega munið eftir að bóka ykkur fyrirfram í þann jógatíma sem þið ætlið að koma í. Einnig að staðfesta komu þína með því að setja kennitöluna í ipadinn í afgreiðslunni.

Elsku vinir, við erum svo þakklát fyrir ykkur. Endilega látið okkur vita hvernig við getum þjónað ykkur betur.

Hjartans þakkir
Starfsfólk Jógasetursins

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.