Sólarhylling á Sumarsólstöðum með Maríu | Jógasetrið

Sólarhylling á Sumarsólstöðum með Maríu

Sunnudaginn 21. júní kl 10:00 – 12:00  

Sumarsólstöður
Fögnum sólinni á lengsta degi ársins  

108 sólarhyllingar og gong slökun með Maríu
sunnudaginn 21. júní kl 10:00 – 12:00

Við ætlum að gera saman 108 sólarhyllingar sem er hugleiðsla í hreyfingu, notuð til að heiðra árstíðaskipti eins og sumarsólstöður. Iðkunin þjónar þeim tilgangi að byggja upp innri hita fyrir hreinsun líkamans, ýta á líkamleg mörk og rækta djúpa andlega seiglu. Endurnærandi gongslökun í lok tímans.

Frítt fyrir iðkendur Jógasetursins sem bóka sig í tímann

Aðrir greiða 4.500 kr

 

Nánar um viðburðinn
Það tekur um það bil rúmlega klukkustund til ca ein og hálf klukkustund, að gera sólahyllinguna 108 sinnum, sem veitir tækifæri til að losa um tilfinningalegar hindranir, gefa sig flæðinu á vald og finna djúpa innri ró.

Fyrst og fremst hlustaðu á líkamann og aðlagaðu eftir þínum þörfum og hikaðu ekki við að taka pásu ef þú þarft á henni að halda. Hvort sem þú klárar 8, 18 eða 49 sólarhyllingar skiptir ásetningurinn mestu máli.
Þú getur skipt æfingunni upp í nokkrar umferðir og hvílt þig á milli. Gerðu það sem hentar þér best!
Talið er að hitinn (innri eldurinn) sem myndast í þessari iðkun hafi hreinsandi áhrif, hjálpi líkamanum að losa sig við eiturefni og færi þig nær þér.
Gerðu jóga að iðkun sem kemur frá hjartanu, ekki frá egóinu.

* Í fornum helgum ritum er talan 108 heilög tala.
* Í talnaspeki leggst 108 saman í 9 (1+0+8), sem táknar kærleika, eilífðina og andlega vakningu.
* Í ayurveda eru sagðir vera 108 orkupunktar á líkamanum og 108 orkubrautir sem sameinast í hjartastöðinni
* Í stjörnufræði er fjarlægðin milli sólar og jarðar um það bil 108 sinnum þvermál sólarinnar.
* Mala-hugleiðslubönd innihalda 108 perlur sem eru notaðar til talningar í hugleiðslu.

6 atriði sem þú upplifir þegar þú iðkar 108 sólarhyllingar:

Þú ert sterkari en þú heldur
Óháð því hversu margar umferðir þú klárar muntu líklega koma þér á óvart.
Gefðu þér viðurkenningu fyrir það sem þú hefur afrekað, því þú ert kraftmikil manneskja og átt það skilið!

Neikvæðar hugsanir skilgreina þig ekki
Neikvæðar hugsanir geta orðið að orku sem festist í líkamanum. Sólarhyllingar hjálpa þér að vinna þig í gegnum hana og að lokum sleppa takinu á því sem þjónar þér ekki lengur.
Að losa um neikvæða orku er mikilvægt skref að hamingju, og þessi iðkun sýnir að þú hefur kraftinn til að sleppa öllu sem heldur aftur af þér.

Kraftur til að breyta sýn
Þegar þú iðkar með jákvæðu hugarfari og notar möntrur eins og „Ég er í friði,“ gæturðu fundið fyrir verulegum breytingum á skapi þínu og lífsviðhorfi. Að beina athyglinni að jákvæðni á meðan þú æfir gefur kraft til að umbreyta allri sýn á lífið.
Þegar þú hefur lokið 108 sólarhyllingum gætirðu jafnvel fundið fyrir auknu sjálfstrausti!

Jarðtengin inn í hvaða áskorun sem er
Endurtekningin sem felst í að gera 108 sólarhyllingar skapa tilfinningu stöðugleika og jarðtengingu. Sólarhyllingin er nefnd til heiðurs hringrás lífsins.
108 sólarhyllingar eru krefjandi, en á meðan á iðkuninni stendur finnurðu jarðtengingu og lærir hvernig þú getur nálgast hana í hvaða áskorun sem þú stendur frammi fyrir.

Uppgötvaðu þinn innri drifkraft
Þessi upplifun er mismunandi fyrir hvern og einn, en líklega muntu finna fyrir tilfinningum og skynjun sem þú vissir ekki að væru til staðar — eða hélst að væru löngu horfnar.
Þú gætir uppgötvað hvað veitir þér innblástur til að halda áfram eða hvernig skuldbindingin getur byggt upp sjálfstraust. Í gegnum þessa iðkun ertu vitni að innri styrk og drifkrafti.

Meiri orka á eftir
Þú finnur fyrir aukinni orku þegar þú lýkur sólarhyllingunum, því þær mynda Prana — lífsorku og það er sannarlega dásamleg tilfinning!

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.