Tölurnar þínar á nýju ári – Vinnustofa með Estrid

Laugardaginn 21. febrúar kl. 16:00 – 18:30

Með talnaspeki getum við öðlast skilning á okkur sjálfum og umhverfinu á hlutlausan hátt. Markmið jógaiðkunar er á stóran hátt að öðlast hlutleysi en samt að vera þátttakandi. Við þurfum samúð og samkennd. Samkennd er á einhvern hátt þitt upprunalega náttúrulega ástand. Það er eins og fiskurinn sem kemur aftur í hafið. Þjáningin kveður þegar samkenndin kemur.

Á vinnustofunni munum við skoða jógíska talnaspeki og rýna í okkar eigin afmælisdag, okkar eigin tölur, gerum jóga og hugleiðum.

Mundu að hafa með þér minnisbók og skriffæri.

Estrid býður einnig upp á einkatíma í persónulegum talnalestri. Tímapantanir með tölvupósti: sirimukh78@gmail.com

Alemnnt verð: 5.500 kr
Iðkendur í Jógasetrinu 3.500 kr  

 

Estrid Þorvaldsdóttir, byrjaði í kundalini yoga kennararnámi í september 2008. Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan, hefur notið vaxandi vinsælda og er stundum kallað jóga hins vinnandi fólks. Estrid starfar sem yoga kennari og ráðgjafi og leiðsögumaður um fjöll og fyrnindi. Hún er í framhaldsnámi í kundalini yoga fræðum.  Hún vinnur einnig með orkustöðvar heilun byggt á vísindum kundalini yoga og veitir persónulega ráðgjöf við að finna út hvaða orkustöðvar eru í ójafnvægi og veita hugleiðslur og yogaæfingar sem hjálpa viðkomandi finna þitt eðlilega ástand. Estrid kennir Kundalini jóga,  Orkustöðvanámskeið og er einnig með einkatíma í Orkustöðvarlestri.

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.