NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST 17. ágúst 2026
„Þegar ég kem úr jóga, þá á ég bara allan heiminn“ – Magga 88 ára
NÆSTU NÁMSKEIÐ:
Mánu- og miðvikudagar
17. ágúst – 7. október (8 vikur). Verð: 25.000 kr.
Þriðju- og fimmtudagar
18. ágúst – 8. október (8 vikur). Verð: 25.000 kr.
Einnig velkomið að koma í aðra tíma í stundaskrá.
Möguleiki að hafa með þér eigin dýnu, púða, teppi eða fá lánað á staðnum. Vinsamlega hafðu með þér vatnsbrúsa.
KENNARAR
Auður Bjarnadóttir, María Margeirsdóttir, Edda Björgvins, Eva Hallbeck og Rósa Matt
Það er aldrei of seint að byrja að stunda jóga – Allt á þínum forsendum!
Nærandi jógatímar á stólum og gólfi þar sem boðið er upp á rólegar æfingar eftir getu hvers og eins. Áhersla er á öndun, teygjur, styrk, gleði, liðleika, hugleiðslu og slökun.
Öndunaræfingar hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann. Jógaæfingarnar draga úr stirðleika líkamans og auka teygjanleika og mýkt. Hugleiðslan hjálpar við að hægja á hugsanaflóðinu og njóta hvers andartaks betur. Léttar æfingar bæði á stól og á gólfi sem auka teygjanleika og mýkt, bæta jafnvægi og stöðugleika. Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld og nærir huga, hjarta og líkama.
Vinsamlega mundu að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.
„Við verðum ekki eldri með árunum, en nýrri með hverjum deginum”
MEÐMÆLI
„Ég hef verið í jóga áður, nokkrum sinnum, en aldrei haft eins gaman og mikið gagn eins og af þessu námskeiði. Öll umgjörð persónuleg og hlýleg, bæði kennslan og öll samskipti við starfsfólk. Það hentar mér fullkomlega.“
„Ég get 100 % mælt með Jógatímunum 60+, ég held mér verkjalausri í bakinu ef ég mæti í tímana, gott jafnvægi á æfingum, teygjum og slökun. Þetta er í fyrsta skipti sem ég endist í líkamsrækt þökk sé góðum kennurum og afslöppuðu umhverfi.
Takk fyrir mig.“ Gerður.
„Mér er það mjög ljúft að mæla eindregið með upplifun minni af að stunda jóga með 60+ hópnum sl. tvö ár og hálft ár. – Sú upplifun hefur gefið mér afar mikið bæði andlega og líkamlega og satt að segja get ég varla hugsað mér að vera án þess í framtíðinni. Andrúmsloftið í Jógasetrinu er einstakt svo ekki sé talað um kennarana Auði og Maríu sem leggja sig allar fram um að láta okkur líða sem allra best svo við höfum sem mest gagn af æfingunum sem eru einstaklega vel út færðar. Slökunin í lok hvers tíma er sömuleiðis yndisleg svo ekki sé meira sagt!“ Þórunn.
„Ég er 79 ára gömul og hef í gegnum tíðina verið að glíma við þrálátan gigtarsjúkdóm. Ég hef stundað jóga árum saman, því ég vil halda verkjalyfjum í lágmarki. Tímarnir hjá Jogasetrinu eru í topp klassa og reynst mér ómetanlegir, bæði fyrir líkama og sál og er þakklát fyrir að geta sótt þá áfram.“ Jónína.