OPIÐ KORT – Vorönn
Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
Þú bókar þig í tíma áður en þú mætir.
Einnig velkomið að mæta í aðra opna tíma í stundaskrá.
Velkomið að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.
Kennsla hefst 5. janúar 2025
| Mánu- og fimmtudagar | kl. 20.15 – 21.15 |
Vorönn 72.000 kr, 1. janúar – 31. maí
Einn mánuður 19.000 kr
Tveir mánuðir 36.000 kr
KENNARI
Birgir Þ. Jóakimsson
Mjúkar teygjur, öndun, styrking og slökun í lok tímans.
Karlajóga fór á flug með Birgi haustið 2015 og nú er kominn sterkur kjarni í karlajóga. Jóga er komið til að vera og æ fleiri karlar þiggja þessi frábæru fræði og jógaiðkun til líkamlegrar og andlegrar vellíðunar!
Ein algengasta athugasemdin sem jógakennarar fá þegar þeir fara að dásama jógaiðkun er: „Jóga er nú ekki málið fyrir mig, ég er nefnilega svo rosalega stirður“. Einnig halda sumir að stressaðir einstaklingar eigi ekkert erindi í jóga, jógaiðkun sé aðeins fyrir sallarólega einstaklinga sem eru með allt sitt á hreinu. Sú er auðvitað alls ekki raunin. Stirðir og stressaðir einstaklingar eru einmitt þeir sem hafa einna mest gagn af því að stunda jóga. Málið er bara að byrja rólega og hlusta vel á líkamann.
Meðmæli:
Ég er ánægður með tímana hjá Bigga. Ég hef sótt tíma hjá honum í 7 annir. Ég hef sótt tímana vegna teygjuæfinga því ég er skrifstofukall og þyki frekar stirður. Þá reyni ég að fókusera á djúpa öndun með æfingum vegna vægs astma sem ég er með og hjálpa æfingar hans mikið við að “opna” lungun. Ég er golfari og nota teygjuæfingar sem ég hef lært hjá Bigga bæði áður og eins eftir golfhring. Sigurður
Biggi bjargaði mér frá hnykkjaranum. Fór til hnykkjara með ca. 6 vikna millibili í 30 ár. En er hættur því eftir að ég byrjaði í jóga hjá Bigga. Jón Þröstur
„I am a man of infinity, in pursuit of my destiny”.
Vinsamlega mundu að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.