Lokað fyrir skráningu vegna mikillar aðsóknar. Opnum aftur föstudaginn 9. október.
Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
Þú getur valið úr öllum meðgöngutímum í stundatöflu. Í boði er að velja 3 meðgöngutíma í viku, en einnig aukatíma, sjá hér neðar.
MiIKILVÆGT er að bóka sig í tíma fyrirfram til að tryggja sér plássið í tímanum. Hægt er að bóka tíma með 2ja daga fyrirvara.
Fyrirframskráningin fer fram í gegnum heimasíðuna okkar www.jogasetrid.is > BÓKA TÍMA.
ATH. Til að bóka þig í tíma þarftu að vera með virkt kort hjá okkur svo þú munt geta bókað þig í tíma um leið og við höfum gengið endanlega frá skráningunni þinni í kerfið okkar.
VINSAMLEGAST MUNA að afbóka eins fljótt og hægt ef þú kemst ekki í tímann…….af virðingu við aðrar konur sem kannski bíða eftir plássinu. Takk!.
Stundaskrá haust 2023:
Mánudagar, miðvikudagar og fimmtudagar | kl. 18.45 – 20.00 |
Mánudagar | kl. 14:00 – 15:15 |
Þriðjudagar & fimmtudagar | kl. 12.00 – 13.15 |
Föstudagar | kl. 16:00 – 17:00 |
Laugardagar | kl. 11:30 – 12:40 |
Auk þess standa þér eftirfarandi opnir tímar til boða:
Föstudagar Yin, Jóga Nidra djúpslökun | kl. 17:15 – 18:30 |
Þriðju- og fimmtudaga Mjúkt jóga / Nidra | kl. 10.00 – 11.15 |
KENNARAR
Auður Bjarnadóttir, Brynja Gunnarsdóttir, Vera Snædal ljósmóðir og jógakennari, Elva Rut ljósmóðir og jógakennari, Guðrún Theódóra Hrafnsdóttir, Júlía Dalrós og Guðrún Ósk Maríasdóttir.
Í Meðgöngujóga leggjum við áherslu á öndun, teygjur, styrkjandi æfingar, hugleiðslu og slökun. Djúp öndun og slökun er einn mikilvægasti undirbúningur fyrir góða fæðingu. Við leggjum einnig áherslu á sjálfsstyrkingu konunnar og líkamlega og andlega vellíðan fyrir fæðingu og móðurhlutverkið.
Þúsundir kvenna sem komið til okkar í Jógasetrið í yfir 20 ár, hafa staðfest að jóga er einn besti undirbúningur fyrir góða fæðingu enda hvetja flestar ljósmæður konur til að stunda jóga á meðgöngunni. Jóga stuðlar að betri meðvitund og tengingu við líkamann, hugarástand og tilfinningar. Með rólegri athygli dýpkar innsæið og öryggi og sjálfstraust eflist. Í jóga gefur konan meðgöngunni, sjálfri sér og barninu sérstaka athygli og er hvött til að bera ábyrgð á eigin heilsu og vera virk og skapandi í fæðingunni.
Gott er að byrja í meðgöngujóga á 14 –16 viku en fínt að byrja síðar líka. Flestar konur eru fram að fæðingu. Aldrei of seint að byrja og hægt að byrja hvenær sem er á meðan við höfum pláss.
“Kona sem stýrir fæðingu sinni öðlast styrk fyrir lífstíð”
– Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir
Í lok meðgöngu er hægt að bæta við stökum vikum. Ef þú hefur verið í 3 mánuði eða lengur, þá ertu heiðursgestur okkar frá 40 viku og fram að fæðingu – í okkar boði.
Jógadýnur, teppi og púðar á staðnum en velkomið að koma með eigin dýnu með þér. Best að vera með eigin vatnsflösku.
Við tökum vel á móti þér og vonum að þú njótir þess að stunda hjá okkur jóga og hlúa að þér og barninu.
VERÐSKRÁ
1 mánuður 15.000 kr.
2 mánuðir 27.000 kr.
3 mánuðir 37.000 kr.
4 mánuðir 45.000 kr.
5 mánuðir 55.000 kr.
Tvær vikur í lok meðgöngu 9.000 kr. (í afgreiðslu)
Ein vika í lok meðgöngu 6.000 kr. (í afgreiðslu)

