OPIÐ KORT – VOR 2023
Frjáls mæting í Jógaflæði, Kundalini jóga, Mjúkt jóga og Jóga Nidra.
Við skráningu verður kortið þitt virkt og þú getur byrjað strax að mæta.
Þú bókar þig í tíma áður en þú mætir. Einnig velkomið að kaupa stakan tíma.
Vinsamlega hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.
Þriðjudagar (Mjúkt jógaflæði og Nidra) |
|
|
Föstudagar (Mjúkt jógaflæði og Nidra) | kl. 12.00 – 13.00 | |
KENNARAR
Auður, Edda, Rósa Matt
Mjúkt jóga byggir á sama grunni og Jógaflæði en farið hægar og mýkra inn í allar stöður.
Hatha er ein þekktasta tegund jóga á vesturlöndunum. HA þýðir sól og THA þýðir máni. Unnið er með að flæða mjúklega inn og úr jógastöðum (asana), öndun (pranayama) og slökun. Jafnvægi styrkist í innkirtlakerfinu, taugakerfinu, vöðvum og stoðkerfi, ónæmiskerfi og blóðrás.
Þegar við hægjum á önduninni þá róast hugurinn og við styrkjum meðvitund um augnablikið hér og nú. Í hringrás öndunar skapast eins konar hugleiðsluástand í jógastöðunum, einbeiting og jafnvægi í líkama, tilfinningum og huga. Þannig opnar jóga glufu fyrir sálartengingu þar sem við skynjum okkur tengd og í einingu við allt.
Vinsamlega mundu að hafa með þér dýnu, púða, teppi og vatnsbrúsa.
