
Förum brosandi inn í haustið Vítamín orkustöðvanna
Þriðjudaginn 9. september 2025 kl 19:00 – 21:30
Fögnum haustinu og gerum Jóga fyrir Orkustöðvarnar. Hér er orkan vakin frá rótum og upp. Njótum kæru jógar. Ljósið kemur alltaf aftur! Munum að við erum andlegar verur með mannlega reynslu. Jóga styrkir svo fallega heildina sem við erum.
Estrid hefur verið að læra um og vinna með orkustöðvarnar í yfir áratug. Þann 9. september ætlar hún að kenna þér að komast að því hvaða orkustöð er í góðu formi og hvaða orkustöð þarf athygli. Allar æfingar í jóga hafa jákvæð áhirf á orkustöðvarnar.
Jóga, slökun, Gong og hugleiðsla.
Estrid Þorvaldsdóttir, byrjaði í kundalini yoga kennararnámi í september 2008. Kundalini jóga hefur notið vaxandi vinsælda og er stundum kallað jóga hins vinnandi fólks. Estrid starfar sem yoga kennari og ráðgjafi og leiðsögumaður um fjöll og fyrnindi. Hún er í framhaldsnámi í kundalini yoga fræðum. Hún vinnur einnig með orkustöðvar heilun byggt á vísindum kundalini yoga og veitir persónulega ráðgjöf við að finna út hvaða orkustöðvar eru í ójafnvægi og veita hugleiðslur og yogaæfingar sem hjálpa viðkomandi finna þitt eðlilega ástand. Estrid kennir Kundalini jóga, Orkustöðvanámskeið og er einnig með einkatíma í talnaspeki og orkustöðvarlestri.
Ekki missa af þessu tækifæri……
Innifalið fyrir iðkendur Jógasetursins, bóka í tíma hér:
https://www.jogasetrid.is/
Verð 4.500 kr.
Skráning og kaupa aðgang hér, ef þú ert ekki iðkandi í Jógasetrinu:
https://www.abler.io/shop/jogasetrid?country=IS