
Jóga fyrir 60 PLÚS – Ný námskeið hefjast 5. og 6. janúar
Mánu- og miðvikudaga kl 13:30 (8vikur)
og þriðju- og fimmtudaga kl 14:00 (8vikur)
Ný námskeið hefjast 5. og 6. janúar
Það er aldrei of seint að byrja að stunda jóga – Allt á þínum forsendum!
Nærandi jógatímar á stólum og gólfi þar sem boðið er upp á rólegar æfingar eftir getu hvers og eins. Áhersla er á öndun, teygjur, styrk, gleði, liðleika, hugleiðslu og slökun.
Öndunaræfingar hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann. Jógaæfingarnar draga úr stirðleika líkamans og auka teygjanleika og mýkt. Hugleiðslan hjálpar við að hægja á hugsanaflóðinu og njóta hvers andartaks betur. Léttar æfingar bæði á stól og á gólfi sem auka teygjanleika og mýkt, bæta jafnvægi og stöðugleika. Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld og nærir huga, hjarta og líkama.