Jóga fyrir 60 PLÚS – Nýtt námskeið hefst 28. apríl 2026 | Jógasetrið

Jóga fyrir 60 PLÚS – Nýtt námskeið hefst 28. apríl 2026

Þriðju- og fimmtudagur kl 14:00 – 15:00

Nýtt námskeið hefst 28. apríl – 18. júní (8 vikur)

 

 

Það er aldrei of seint að byrja að stunda jóga – Allt á þínum forsendum!

Nærandi jógatímar á stólum og gólfi þar sem boðið er upp á rólegar æfingar eftir getu hvers og eins. Áhersla er á öndun, teygjur, styrk, gleði, liðleika, hugleiðslu og slökun.

Öndunaræfingar hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann. Jógaæfingarnar draga úr stirðleika líkamans og auka teygjanleika og mýkt. Hugleiðslan hjálpar við að hægja á hugsanaflóðinu og njóta hvers andartaks betur. Léttar æfingar bæði á stól og á gólfi sem auka teygjanleika og mýkt, bæta jafnvægi og stöðugleika. Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld og nærir huga, hjarta og líkama.

 

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.