60 PLÚS – nýtt námskeið hefst 14. maí

Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14.00 -15.00

Nýtt námskeið
14. maí – 27. júní (7 vikur)
19.000 kr
Fjölbreyttir og yndislegir tímar í góðum félagsskap. Styrkjandi og upplyftandi fyrir sál og líkama!
 

Það er aldrei of seint að byrja að stunda jóga – Allt á þínum forsendum!

Nærandi jógatímar á stólum og gólfi þar sem boðið er upp á rólegar æfingar eftir getu hvers og eins. Áhersla er á öndun, teygjur, styrk, gleði, liðleika, hugleiðslu og slökun.

Öndunaræfingar hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann. Jógaæfingarnar draga úr stirðleika líkamans og auka teygjanleika og mýkt. Hugleiðslan hjálpar við að hægja á hugsanaflóðinu og njóta hvers andartaks betur. Léttar æfingar bæði á stól og á gólfi sem auka teygjanleika og mýkt, bæta jafnvægi og stöðugleika. Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld og nærir huga, hjarta og líkama.

 

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“

 

– Yogi Bhajan.